fimmtudagur, 25. september 2008

Á leikskóla er gaman

Í dag er annar dagur SF í leikskóla. Við fórum í morgun og ég skildi hana eftir þegar þau voru búin að fá morgunmat. Fullt af nýju dóti að skoða og greinilegt að henni líður vel, þó hún vilji auðvitað helst hafa mömmuna sína hjá sér. Á morgun er lokað á leikskólanum, og því gott að hafa dagmömmuna til að taka við búbbanum. Ætlum að hafa það rólegt heima í kvöld, og um helgina þarf að merkja öll fötin og helst prjóna eins og eitt par af ullarsokkum til að hafa í leikskólanum.

mánudagur, 22. september 2008

Lúðrasveit Verkalýðsins


Tók þessa mynd á æfingu í dag. Gamla lógó LV speglast í básúnuklukkunni. Bjútifúl brass!

laugardagur, 20. september 2008

Ýta mér!


Fórum í dag og mátuðum nýja leikskólann. Hann stendur í miklum halla og þeirri stuttu leist vel á þetta allt saman, mikið að skoða. Foreldrarnir fara að skoða fullorðna fólkið í vikunni. Spennó..

þriðjudagur, 2. september 2008

Kærar þakkir!!

Við hjónin sitjum hér og erum alveg orðlaus...
Ætlum samt að reyna að koma orðum að því hvernig okkur líður, og vonum að einhver sé að fylgjast með þessu bloggi.
Fyrst af öllu viljum við þakka okkar nánustu fyrir alveg yndislega veislu, þessi dagur rennur seint úr minni, og það var æðislegt að fá að deila þessu öllu með ykkur. Takk fyrir:)
Við vorum að ljúka við að opna allar gjafirnar, og við bara urðum að koma smá þakklætislínu út í alheiminn. Það sem stendur uppúr eru allar hamingjuóskirnar sem þið skrifuðuð í kortin, við tárfelldum alveg í kross á köflum. Þið eruð greinilega mjög sammála um hvað okkur hefur vantað í búið, því uppúr kössunum komu hvorki meira né minna en þrettán stórar skálar (ávaxta/salat-skálar) (fjörutíu og tvær ef við teljum súpuskálar og aðrar minni skálar með). Svo ekki taka því illa ef við skiptum einhverjum skálum út fyrir kaffibolla eða tvo, þar sem við fengum enga svoleiðis.
Annars erum við eiginlega bara búin að vera eins og dáleidd síðan á laugardaginn, alveg yfir okkur ánægð með þetta allt. Ég held að Krissi sé búinn að fyrirgefa hótelinu fyrir að hafa ekki hengt upp fína borðaplanið sem hann var búinn að teikna í AutoCAD. Veðurguðunum er allavega fyrirgefin rigning daganna fyrir helgi úr því það stytti upp tímanlega fyrir rúntinn í Corvettunni:) Svo erum við mjög þakklát fyrir öll skemmtiatriðin og ræðurnar í veislunni, þetta var svo yndislegt.
Við vonumst til að fá tækifæri til að þakka ykkur sem flestum persónulega á næstu dögum, þið eruð öll velkomin í heimsókn hvenær sem er, en kaffið verður að drekka úr ósamstæðum bollum;)

Ps. Ef einhver veit hvað varð af brúðarslörinu mínu væri gott að vita um örlög þess, ég skil ekkert hvað hefur orðið af því...
Pps. Endilega kvittið fyrir innlitinu, það hefur enginn gert lengi, og mig langar að vita hvort einhver er að lesa.

laugardagur, 30. ágúst 2008

laugardagur, 23. ágúst 2008

miðvikudagur, 13. ágúst 2008

Afsakið hlé

Sæl öll. Vildi láta heyra í mér hérna inni. Er margoft búin að semja bloggfærslur á gemsann sem ekki hafa farið í gegn þegar ég hef reynt að senda þær. Mjög spælandi, það er nú ekki svo þjált að skrifa á gsm-síma...
Skrudda litla er búin að vera í aðlögun hjá dagmömmu og það gengur alveg rosalega vel. Dagmamman er algjör draumur, og er með mjög fína aðstöðu fyrir krakkana. SF fær hollann mat hjá henni, hafragraut á morgnanna og fisk, slátur, lasagne, grjónagraut eða álíka í hádeginu. Hinir krakkarnir eru líka mjög fínir, þó þau hafi nú mismikið vit á að vera eitthvað að leika hvort við annað, þessir gormar. Sandkassinn úti í garði hefur gert mikla lukku, og eins er nóg af dóti til að skoða.
Brúðkaupsundirbúningurinn gengur alveg ágætlega. Þó enn eigi eftir að gera ýmislegt erum við á ágætis róli tímalega séð, svo það er engin ástæða til að vera óhóflega stressaður yfir neinu. Aukahendur eru þó alltaf vel þegnar.
Læt þetta duga í bili, og vona að það lagist með bloggið úr gemsanum. Þá get ég sett inn myndir af heimaföndraða eldhúsinu hennar SF:)

Bestu kveðjur úr Furugrund.

föstudagur, 1. ágúst 2008

Nauthólsvík ...aftur


Eftir að við létum loksins verða af því að festa barnasætið á hjólið fórum við í smá hjólaferð til að setja loft í dekkin. Gátum ekki stoppað og hjóluðum hálfa leið í kringum flugvöllinn og komum við í Nauthólsvíkinni á leiðinni heim. "Aðeins" færri þar en síðast, svo sú stutta naut sín enn betur.

fimmtudagur, 31. júlí 2008

Í sól og sumaryl


Það fór víst ekki framhjá neinum að veðrið í gær var gott. Mamman hafði ekki samvisku til að taka sér sólarfrí fyrr en netið datt út.. Þá drifum við okkur niður í Nauthólsvík eins og svo margir, og hittum þar Álfheimabræður (Hallgrímur á myndinni). Frábær upplifun að fá svona veðurblíðu hingað á klakann!

mánudagur, 28. júlí 2008

Mávarnir á Tjörninni


Hittum Sollu og Vilborgu í bænum um daginn og ætluðum að gefa öndunum brauð í ró og næði. Lentum í mávageri og látum, við mömmurnar urðum hálf hlessa yfir áganginum. Það skemmdi samt ekki fyrir því hversu gaman var að hitta mæðgurnar:-)

sunnudagur, 27. júlí 2008

Garden party



Garden party


Heimsóttum Kára og fjölskyldu í góðviðri um daginn, og þau frændsystkinin undu sér vel og lengi í litla húsinu í garðinum. Yndislegt að sjá þau vitkast í stereó.

fimmtudagur, 10. júlí 2008

laugardagur, 5. júlí 2008

Sögustund


Þó að flestar frænkur séu mjög fínar, þá eru til alveg sérstaklega þolinmóðar og góðar frænkur. Það eru sparifrænkur. Þær passa mann og leyfa manni að leika með Tígra sinn, eiga alltaf til knús handa manni og lesa bókina tvisvar ef maður biður fallega. Svo fara þær með manni í sund, og eiga mysing. Sparifrænkur þarf samt ekki að spara, sem betur fer.

fimmtudagur, 3. júlí 2008

Hann á afmæl'í dag


Til hamingju með afmælið, afi. Sú stutta er alveg með það á hreinu að þú ert í flugvélinni, vonum að það sé allt í lagi að halda upp á afmælið þar. Knús frá okkur öllum.

mánudagur, 30. júní 2008

Þurrkatíð


Vissara að vökva blómin hjá Öldu frænku..

þriðjudagur, 17. júní 2008

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei...


...það er kominn 17. júní! Gleðilega þjóðhátíð allir saman!
Erum búin að vera í bænum eftir hádegið, mamman marseraði með Lúðrasveit Verkalýðsins frá Hagatorgi niður í Hljómskálagarð þaðan sem við röltum um bæinn og sáum meðal annars Leif breika á Austurvelli. Urðum fyrir hefðbundnum gasblöðruvonbrigðum, en það eyðilagði ekki góðu stemninguna í kvöldmatnum, þar sem við grilluðum með móðurfjölskyldu SF.
Vonum að allir hafi átt góðann dag:)

mánudagur, 16. júní 2008

Í vinnunni


Get ég aðstoðað?
Sú stutta fékk að koma með mömmu sinni í vinnuna í dag, og hafði mjög gaman að því. Um morguninn var hún mjög dugleg að hjálpa mömmu sinni að henda miðum í ruslið, en eftir hádegið var mest hjálp í henni sofandi úi í vagni... Hún sefur greinilega vel hérna í Grafarvoginum, því ég endaði á að vekja hana. Í lok dagsins hafði hún lært að segja "Anna" og "kex" (deh).

fimmtudagur, 12. júní 2008

Grillmatur


Verði ykkur að góðu:)

miðvikudagur, 11. júní 2008

laugardagur, 7. júní 2008

Kveðjur...


...úr kvennahlaupinu á Snæfellsnesi.

þriðjudagur, 3. júní 2008

Af móður ertu komin, að móður skaltu verða

Á fimmtudaginn síðastliðinn fórum við í jógamömmuhópnum á sýninguna Mammamamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Þetta var svoldið öðruvísi sýning, allir áttu að fara úr skónum og í bleika sokka þegar inn var komið, og leiksviðið var eins og bokshringur sem áhorfendurnir sátu í kringum. Frammi var þessi þvottasnúra sem þið sjáið á myndinni, þar sem maður get hengt upp orðsendingar til mömmu sinnar. Söguþráðurinn var nánast enginn, en það var mjög sterkur rauður (eða bleikur) þráður í gegnum alla sýninguna, sem var spunninn í kringum samband mæðra og barna. Þarna voru sagðar sögur mæðra og sögur dætra, bæði fyndnar, grátbroslegar, ljúfar, og sorglegar. En allar voru þær sannar. Fyrir okkur sem vorum bæði mæður og dætur, og áttum bæði dætur og mæður var þetta sýning sem bergmálaði í sálinni á manni, og maður fann fyrir því hversu margt í móðurhlutverkinu er sameiginlegt öllum sem eru í þessum sporum. Samband móður og dóttur er svo sterkt, frá fæðingu til grafar, frá gleði til sorgar, og frá ást til átaka. Stundum er manneskjan á hinum enda naflastrengsins sú dýrmætasta og mikilvægasta í heimi, og stundum fer hún óendanlega mikið í taugarnar á manni. Og allt er þetta svo ofureðlilegt.
En í hópnum okkar voru líka stelpur sem voru einar með naflastrenginn sinn. Ein þeirra hefur misst barn og móðir annarar tapaði baráttunni við krabbamein í byrjun vikunnar. Það var ómögulegt annað en að gráta með þeim, þegar þessar sögur voru sagðar á sviðinu. Á sama tíma og ég samhryggist þeim af öllu mínu hjarta, er ég þakklát fyrir að eiga tvo naflastrengi með sitthvorri Sesseljunni á, og lifi í þeirri barnslegu trú að ég þurfi aldrei að kveðja þær.
Det er så mange svære,
berømmede på jord
la disse få sin ære,
men ingen er som mor
Så mange navn skal gies,
med store fine ord
men dog av alt som sies,
er ingenting som mor
Om hele verdens ære
ble stillet på mitt bord
jeg valgte deg du kjære,
umistelige mor



mánudagur, 26. maí 2008

Ungur nemur


Sú stutta sýnir tölvunarfræðinni talsverðann áhuga, og þetta lofar allt mjög góðu. Hún sleppir örugglega leikskóla og fer beint í sex ára bekk, og verður komin með stúdentspróf fyrir fermingu. Eða því sem næst...

Mmm, namm!


Eurovisionkvöldinu var fagnað með grilli og sú stutta féll alveg fyrir maísstönglunum.. Takið eftir að hún heldur um tannstönglana!

sunnudagur, 25. maí 2008

Sumarið er komið


Vonum að allir nái að njóta veðurblíðunnar, nær og fjær.

miðvikudagur, 21. maí 2008

Hitað upp fyrir tónlistarferil


Þessa dagana er xylófónninn tekinn fram öðru hverju, og hristurnar líka. Upprennandi slagverksleikari á ferð.

þriðjudagur, 20. maí 2008

mánudagur, 12. maí 2008

IKEA by night

Mamman á bænum gerðist svo fræg að leika í sjónvarpsauglýsingu um daginn. Nýja IKEA auglýsingin skartar meðlimum úr Lúðrasveit Verkalýðsins, og þar á meðal þessari sem sefur í IKEA-rúminu, alveg síðust í auglýsingunni. Skil ekkert að Spielberg sé ekki búinn að hringja... Þessi mynd er frá "settinu" (ég lærði líka ný orð), og það skemmtilega er að hann Runi (með hjálminn) sefur í alvörunni í rúminu. Það hljóta að teljast meðmæli með dýnunum.


fimmtudagur, 8. maí 2008

Komin?


En ég er að lesa svo spennandi grein.. Getiði ekki rúntað smá á meðan ég klára?

föstudagur, 2. maí 2008

Kaflaskil


Í morgun, um áttaleytið var öll fjölskyldan stödd í bílnum á leiðinni í vinnurnar. Við hjónaleysin horfðumst í augu þegar átta-fréttirnar hófust, og hugsuðum það sama: fæðingarorlofið búið. Þau feðginin hafa notið síðastliðinna tveggja mánaða og munu eflaust búa lengi að þeim böndum sem þau hafa tengst. Húsverkunum hefur einnig verið sinnt af kostgæfni, og gengur K nú undir nafninu Cosby.

fimmtudagur, 1. maí 2008

1. maí


Gamlir taktar rifjaðir upp í lúðrasveitinni. Þekkist ekki trommarann þarna? Kveðjur frá Ingólfstorgi!

miðvikudagur, 30. apríl 2008

Fiskur 2








Fengum myndirnar úr ungbarnasundinu, langaði að deila þessum með ykkur.


mánudagur, 28. apríl 2008

Kisimodo borðar slátur...


...móður sinni til mikillar ánægju í ljósi þess að pabbinn er hvorki sérstaklega hrifinn af köttum né innmat...

Ha?


Þreytt segirðu? Og ertu að reyna að kenna mér um það? Hvað ætlaðir þú eiginlega að sofa lengi? Sjö? Glætan, þá er hálfur dagurinn liðinn. Hvað er í morgunmat?

Sólin sleikt hjá ömmusystur

Mamman fór á danssýningu hjá Lipurtá litlu frænku á laugardaginn var, og svo var haldið í Grafarvoginn í framhaldinu. Þessi mynd er tekin þegar frændurnir okkar (þessir sem verða friggjára í júlí) flatmaga á pallinum í veðurblíðunni. Þetta var bara örskotstund, annars voru þeir uppteknir við að fylla bensín á traktorinn og grafa upp hindberjarunnann. Íslenskum landbúnaði veitir ekki af svona liðsauka.


þriðjudagur, 22. apríl 2008

Fótsnyrting


Ýmsum leiðum er beitt til að fá þá stuttu til að láta betur að stjórn. Hvað naglasnyrtingu varðar reyndist árangursríkt að klippa mömmuneglur líka, þá vildi hún ólm láta klippa sínar til að vera eins. Að þessu loknu varð hún að fá að prófa sjálf, og hér sést færni hennar á þessu sviði. Hún er sko alveg með það á hreinu hvað naglaklippur eru, og ef hún nær í þær ber hún þær óðara að tánöglunum og þykist klippa, óháð því hvort hún er í sokkabuxum eða ekki.
Það skondna gerðist svo í gær að hún náði í minnislykil sem var á skrifborðinu í ganginum. Hún kannaðist greinilega ekki við þetta, en eftir smástund bar hún hann líka að tánum eins og um naglaklippur væri að ræða. Alveg yndislegt að kíkja svona inn í kollinn á þessu kríli og sjá hvernig hennar heimur lítur út.

Afmæli

Afmæli mömmunnar nálgast, og ég vil benda þeim sem vilja vera tímanlega í þessu á bókina "Einföld barnaföt fyrir 1-4 ára", sem er í bókabúðum núna. Langar rosalega mikið í þessa bók, og á von á að það komi skottu litlu til góðs. Ástæðan fyrir því að ég er að vekja athygli á þessu núna er að það er hægt að nota ávísun frá bókaútgefendum til að fá bókina á betra verði. Hana má prenta út hér. En hún gildir bara til 4. maí...

föstudagur, 11. apríl 2008

Morgunleti

Það er nú einu sinni þannig að foreldrarnir á heimilinu hoppa ekki beinlínis framúr rúminu á morgnanna, en það er ekki alveg einfalt að kúra og vakna í rólegheitum með eina svona litla skrýtlu í rúminu. Í morgun reyndi ég að kaupa mér tíma, og gróf upp gleraugnahulstur úr náttborðsskúffunni fyrir hana að leika sér að. Mundi þá eftir því að ég hafði leikið sama leikinn fyrir svona hálfu ári síðan, og þá fannst henni hulstrið spennandi: nýtt form, aggressívur appelsínugulur litur, og gott að naga. Frábært, hugsaði ég í kaldhæðni, hún á ekki eftir að nenna að leika sér lengi með þetta núna. Lét samt á það reyna og hún bara frekar sátt svo ég næ aðeins að halla aftur augunum. Þegar ég svo er almennilega vöknuð spyr ég hana hvað hún sé með. Þá setur hún hulstrið upp að eyranu eins og það væri símtól! Hún var svona líka hæstánægð með að geta "spjallað" við einhvern þó að mamma og pabbi væru eitthvað treg til svars.
Ég kýs að skrifa þetta á frjótt ímyndunarafl barnsins:)

þriðjudagur, 8. apríl 2008

Fiskur


Fórum í síðasta tímann í ungbarnasundi í gær. Amma og afi komu með og afi var duglegur að taka myndir, meðal annars þessa. Sponsinu finnst mjög gaman í sundi, og við lýsum hér með eftir fólki sem finnst það líka, því við þurfum að vera dugleg að halda vatnsleikninni við. Það ætti því ekki að vera erfitt að fá okkur með í sund, hvort sem er á næstunni eða í sumar.

föstudagur, 4. apríl 2008

Bað


Érafarí ba-að, ligga ligga lái!

fimmtudagur, 3. apríl 2008

Sjá alla bílana!


Ef það er gaman að horfa á bílana útum gluggann heima, þá er það algjört partý að horfa út um gluggann hjá ömmu og afa!

þriðjudagur, 1. apríl 2008

Þreytt


Maður er alveg uppgefin eftir ungbarnasundið.

mánudagur, 31. mars 2008

Heimsókn


Besta vinkonan kom í heimsókn um helgina. Alltaf gaman að hitta ykkur, mæðgur!

Frændur


Þau voru yndisleg saman um helgina, litla skott og allir frændurnir, líka sá frá útlöndum, samankomin hjá langömmu. Minnsta frænka svaf af sér boðið..

laugardagur, 29. mars 2008

Heimsreisa


Hún er alltaf að verða duglegri að labba.

föstudagur, 28. mars 2008

Skotta litla


Ég var að taka vagninn úr bílnum og var ekki nógu róleg að hafa hana á stéttinni. Sá svo að auðvitað var skotta litla best geymd í skottinu rétt á meðan..

fimmtudagur, 27. mars 2008