
...það er kominn 17. júní! Gleðilega þjóðhátíð allir saman!
Erum búin að vera í bænum eftir hádegið, mamman marseraði með Lúðrasveit Verkalýðsins frá Hagatorgi niður í Hljómskálagarð þaðan sem við röltum um bæinn og sáum meðal annars Leif breika á Austurvelli. Urðum fyrir hefðbundnum gasblöðruvonbrigðum, en það eyðilagði ekki góðu stemninguna í kvöldmatnum, þar sem við grilluðum með móðurfjölskyldu SF.
Vonum að allir hafi átt góðann dag:)
1 ummæli:
Dásamlegt að upplifa alvöru þjóðhátíðarstemningu að nýju eftir átta ára hlé! Mamma
Skrifa ummæli